Sendiherra Indlands, Mahesh Sachadeo

Kristján Kristjánsson

Sendiherra Indlands, Mahesh Sachadeo

Kaupa Í körfu

Sendiherra Indlands, Mahesh Sachadeo, heimsótti Akureyri í vikunni. Hann skoðaði sig um í bænum ásamt Girish Hirlekar lækni og ræðismanni Indlands á Akureyri og í lok heimsóknarinnar var boðið til móttöku í Galleríi "Svartfugl og Hvítspóa" í Brekkugötu. Þangað komu samlandar sendiherrans og fleiri gestir og áttu saman góða stund. Hér taka sendiherrann og ræðismaðurinn á móti Andra Teitssyni, framkvæmdastjóra Kaupfélags Eyfirðinga. Með þeim á myndinni eru Anna Gunnarsdóttir ræðismannsfrú og Sveinbjörg Hallgrímsdóttir en þær stöllur reka galleríið saman og hafa nýlega flutt starfsemina um set, úr Listagilinu í Brekkugötuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar