Strætó nýtt leiðakerfi

Sverrir Vilhelmsson

Strætó nýtt leiðakerfi

Kaupa Í körfu

Getið þið ekki auglýst eftir leið 14?" sagði eldri kona við blaðakonu og ljósmyndara Morgunblaðsins á Hlemmi í gær. Konan sagðist hafa beðið lengi eftir vagninum en að hennar sögn tekur það hana helmingi lengri tíma en áður að komast leiðar sinnar. Nýtt leiðakerfi Strætó bs. tók gildi sl. laugardag en í gær reyndi fyrst raunverulega á það enda um virkan dag að ræða. MYNDATEXTI: Strætisvagnar voru meira eða minna á réttum tíma í gær þótt farþegar og vagnstjórar væru sumir hverjir ringlaðir á breytingunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar