Geoff Green

Geoff Green

Kaupa Í körfu

Fríður hópur ungmenna, vísindamanna og kennara lagði af stað frá Reykjavík á laugardaginn í tveggja vikna leiðangur um Grænland til Kanada. Fyrst um sinn er siglt um Ísland og var báturinn í Ólafsvík í gær og gekk hópurinn á Snæfellsjökul en ferðinni er svo heitið til Grænlands í dag. Um er að ræða verkefni sem nefnist Students on Ice. Alls eru 65 ungmenni um borð frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Grænlandi og Íslandi á aldrinum 13 til 19 ára og munu þau fá fræðslu um sögu, vistkerfi og umhverfismál á svæðinu í leiðangrinum. Golfstraumurinn verður rannsakaður með tilliti til veðurfarsbreytinga á norðurslóðum og gerðar mælingar í samvinnu við Sjávarvísindastofnun MYNDATEXTI: Geoff Green vonast til að fá fleiri Íslendinga um borð í framtíðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar