Tófuhvolpur

Tófuhvolpur

Kaupa Í körfu

Reykjahverfi | Gæludýr eru af ýmsum gerðum og leggja menn ýmislegt fyrir sig í þeim efnum. Jóhannes Jónsson, bóndi í Heiðarbót í Reykjahverfi, hefur mikinn áhuga á skepnum, en hann fékk nýlega lítinn tófuyrðling sem fannst á greni í Aðaldalshrauni. Tófan unga hefur verið nefnd Móa og hefur Jóhannes sett ól um hálsinn á henni til þess að geta tekið hana með sér í gönguferðir. Móa er kát og leikur sér og étur flest það sem fóstri hennar færir henni. Stundum fær hún að vera laus og hleypur þá um, en vin sinn yfirgefur hún ekki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar