Vigdís og Sandra

Vigdís og Sandra

Kaupa Í körfu

MARGIR hafa eflaust hlakkað lengi til verslunarmannahelgarinnar og sumir eru þegar haldnir á vit ævintýranna. Þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins komu við á Reykjavíkurflugvelli og Umferðarmiðstöðinni í gærkvöldi lá straumurinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og fjör var að færast í ferðalanga. Margir voru með gítar undir hönd og flestir með bros á vör, enda mikil ferða- og skemmtanahelgi framundan. MYNDATEXTI: Lárus Vilhjálmsson, Bjarki Gunnarsson og Guðmundur Friðriksson hafa allir farið áður á Þjóðhátíð en Katrín Jóhannesdóttir var á leið þangað í fyrsta skipti. Þau voru á leið í flug og sögðust að sjálfsögðu ætla á Húkkaraballið alræmda í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar