Fiskloka

Þorkell Þorkelsson

Fiskloka

Kaupa Í körfu

Í óvenjulegri sumarblíðu júlímánaðar er blaðamanni Morgunblaðsins boðið í lautarferð innan borgarmarkanna. Lautarferðin, sem er með grilluðu ívafi, er í Hljómskálagarðinn og ekkert er til sparað. Boðið kemur frá skvísunum Laufeyju Ósk Geirsdóttur og Dröfn Sigurðardóttur en þær eru ekki alls óvanar að taka til hendinni í eldhúsinu, eða í þessu tilviki í garðinum. Maturinn er algjört aðalatriði í skemmtiklúbbnum Sigríði, en í honum eru þær báðar með öðrum vinkonum sínum og eru þá eldaðir nýir og spennandi réttir við öll tækifæri. MYNDATEXTI: Annar helmingur "fisklokunnar". Hér sést fyllingin; ólífur, hvítlaukur, grænt og rautt pestó og gullostur. Svo er þessu vafið inn í álpappír og grillað í um 15 mínútur. Borið fram með salatinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar