Síminn seldur

Sverrir Vilhelmsson

Síminn seldur

Kaupa Í körfu

Skipti ehf., sem er að stærstum hluta í eigu Exista ehf., nokkurra lífeyrissjóða og Kaupþings banka var hæstbjóðandi í eignarhlut ríkisins í Símanum. Tilboð félagsins hljóðaði upp á 66,7 milljarða króna og ákvað fjármálaráðherra í kjölfarið að tillögu einkavæðingarnefndar að ganga að tilboðinu. Verður kaupsamningur þar að lútandi undirritaður á föstudaginn kemur, en nokkrar vikur munu líða áður en endanlega verður gengið frá kaupunum og greiðsla og afhending hlutabréfa fer fram þar sem leita þarf umsagnar Samkeppnisstofnunar vegna sölunnar MYNDATEXTI: Jón Sveinsson formaður einkavæðinganefndar og Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista, handsala kaupin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar