KT-verslun

Kristján Kristjánsson

KT-verslun

Kaupa Í körfu

KT jeppa- og útivistarverslun hefur verið stafrækt að Njarðarnesi 2 á Akureyri frá því í apríl í fyrra. Eins og nafnið bendir til eru þar á boðstólum ýmsir aukahlutir í jeppa og vandaður útivistarfatnaður. Samhliða versluninni er rekið verkstæði þar sem jeppum er breytt. Þarna ræður ríkjum Halldór Gunnlaugur Hauksson, betur þekktur sem Halli Gulli. Það er einkahlutafélagið Kliptrom sem stendur að rekstrinum en það er í eigu Halldórs, konu hans Birnu Daggar Jónsdóttur og föður hans Hauks Ívarssonar. MYNDATEXTI: KT jeppa- og útivistarverslun á Akureyri býður upp á fjölbreytt úrval aukahluta fyrir jeppafólk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar