Færeyskt varðskip í Reykjavíkurhöfn

Færeyskt varðskip í Reykjavíkurhöfn

Kaupa Í körfu

Færeyska varðskipið Brimil lagði úr Reykjavíkurhöfn í gær en skipið hefur legið við Faxagarð síðan á sunnudag. Þetta var í fyrsta skipti sem færeyskt varðskip kom til hafnar í Reykjavík en áhöfn skipsins var í heimsókn hjá Landhelgisgæslunni. Brimil hefur verið óslitið í fjórar vikur á hafi en sigldi hingað til lands eftir að hafa verið við eftirlit á Flæmska hattinum og nálægt ströndum Nýfundnalands. Jákup M.E. Müller, skipherra á Brimil, sýndi blaðamanni og ljósmyndara Morgunblaðsins skipið í gær. MYNDATEXTI: Færeyska varðskipið Brimil við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn áður en það hélt úr höfn síðdegis í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar