Útsala

Kristján Kristjánsson

Útsala

Kaupa Í körfu

Útsölur eru víða í fullum gangi og hægt að gera góð kaup. Þetta nýta margir sér og er margt um manninn í verslunum. Kaupmenn hafa nýtt sér góða veðrið og fært varning sinn út á stétt, þar sem væntanlegir kaupendur geta skoðað það sem í boði er. Og það er ekki bara hægt að virða fyrir sér fatnaðinn hengdan upp á herðatré, stundum er boðið upp á að gramsa í kerum utan við verslanir og finna sér þannig hræódýran fatnað. Þessi ungi maður hafði fundið flík og mátað, en vildi greinilega fá álit konunnar áður en hann festi á henni kaup.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar