Hrossin

Margrét Þóra Þórsdóttir

Hrossin

Kaupa Í körfu

Akureyri | Þau voru heldur kuldaleg og blaut hrossin sem hímdu í hóp á túni ofan Akureyrar í votviðrinu sem gekk yfir fyrri part gærdagsins. Snéru afturendanum upp í norðanáttina og biðu þess eflaust í ofvæni að birti aðeins til. Heldur fór að draga úr rigningunni þegar leið á daginn og síðdegis var þokkalegasta veður, í það minnsta þurrt. Mörgum þykir sumarið hafa verið í kaldara lagi, en til viðmiðunar eru tvö síðastliðin sumur, sem ekki er alveg að marka. Þau voru einhver þau hlýjustu í manna minnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar