Þjóðminjasafn - Grunnavíkur-Jón

Þjóðminjasafn - Grunnavíkur-Jón

Kaupa Í körfu

Sýningar | Eldur í Kaupinhafn - 300 ára minning Jóns Ólafssonar úr Grunnavík á Þjóðminjasafni Íslands Málfræði og menning, fornkvæðaskýringar og fiskafræði, steina- og skáldskaparfræði, rúnafræði, kennslukver í íslensku og náttúrufræði. Þjóðminjasafn Íslands opnar í dag sýninguna Eldur í Kaupinhafn - 300 ára minning Jóns Ólafssonar úr Grunnavík til minningar um fræðimanninn og eldhugann sem hafði einstaklega breitt áhugasvið og skrifaði um allt milli himins og jarðar. Jón, sem fæddur var árið 1705, lauk prófi í guðfræði 1731 en starfaði lengst af í Kaupmannahöfn við fræðimennsku og skriftir. MYNDATEXTI: Á sýningunni eru m.a. handrit frá Landsbókasafni og Árnastofnun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar