Lagfæringar

Kristján Kristjánsson

Lagfæringar

Kaupa Í körfu

Akureyri | Það er ekki hægt að segja annað en að Andri Snær Stefánsson, starfsmaður Garðsverks, hafi lagt sig fram í vinnunni, þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á hann í gærmorgun. Hann var þá að vinna við gerð umferðareyju ásamt félaga sínum, Birgi Erni Smárasyni, á gatnamótum Langholts og Undirhlíðar. Þar er jafnan mikil bílaumferð í kringum verslun Bónuss við Langholt og þar sem einnig er boðið upp á pitsutilboð hjá Domino's við Undirhlíð er umferðin á þessum slóðum óvenjumikil þessa dagana. "Við höfum aldrei séð aðra eins bílaumferð og var hér seinni partinn í gær (miðvikudag)," sögðu þeir félagar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar