Sumaróperan Galdraskyttan

Sumaróperan Galdraskyttan

Kaupa Í körfu

SUMARÓPERAN æfir þessa dagana Galdraskyttuna eftir Carl Maria von Weber en frumsýnt verður á Listahátíð í Reykjavík næsta vor. Á Menningarnótt í dag kl. 17 og aftur kl. 20 geta áhugasamir tekið forskot á sæluna og litið inn á opna æfingu á verkinu í Iðnó. Leikstjórinn, Jón Gunnar Þórðarson, og hljómsveitarstjórinn, Gunnsteinn Ólafsson, munu þá spjalla við gesti og gefin verða tóndæmi. Með helstu hlutverk fara Elísa Vilbergsdóttir, Hrólfur Sæmundsson, Valgerður Guðnadóttir, Guðmundur Jónsson og Kolbeinn Ketilsson sem á myndinni virðist kominn í hann krappan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar