Klink og bang

Jim Smart

Klink og bang

Kaupa Í körfu

TÓNLEIKAR verða haldnir í lífræna kaffihúsinu Hljómalind , Laugavegi 21, í kvöld. Þar koma fram þau Áki Ásgeirsson sem leikur á tölvutengdan "rafmagns"-trompet, Simon Jermyn sem leikur á umbreyttan rafmagnsgítar, Heiða Árnadóttir sópransöngkona, Ingi Garðar Erlendsson sem leikur á básúnu, Þórunn Björnsdóttir sem leikur á blokkflautu, Haraldur Karlsson sem sér um myndvinnslu og Nina Hitz barokksellóleikari, en hún er stödd hér á landi ásamt Alþjóðlegu barrokk-sveitinni í Den Haag, sem leikur á Kirkjulistahátíð. MYNDATEXTI: Leikin verður lífræn tónlist í Hljómalind.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar