Matthías H. Johannessen

Jim Smart

Matthías H. Johannessen

Kaupa Í körfu

Matthías H. Johannessen tók nýverið við starfi fjármálastjóra Actavis. Matthías útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og með M.Sc.-gráðu í hagfræði og fjármálum frá Copenhagen Business School árið 2002. Áður en Matthías hóf störf hjá Actavis vann hann hjá KB banka sem forstöðumaður hjá áhættustýringu. Áður starfaði hann hjá HSH Nordbank í Kaupmannahöfn, fyrst sem lánasérfræðingur í málefnum fjármálafyrirtækja og síðar sem viðskiptastjóri í fyrirtækjaviðskiptum. Áður en Matthías hóf nám í Kaupmannahöfn starfaði hann hjá greiningardeild Kaupþings á Íslandi. MYNDATEXTI: Vel máli farinn Matthías er sagður húmoristi og vera afar orðheppinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar