Helga Björg og Ástríður Alda

Helga Björg og Ástríður Alda

Kaupa Í körfu

Í Iðnó verða í kvöld kl. 20 tónleikar þeirra Helgu Bjargar Arnardóttur klarínettuleikara og Ástríðar Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Fluttar verða klassískar perlur klarínetttónlistarinnar en á efnisskrá eru verk eftir höfunda á borð við Schumann, Debussy og Bohuslav Martinu. Þetta eru aðrir tónleikar Helgu og Ástríðar en þær hafa lengi spilað saman. Báðar luku þær námi fyrir tveimur árum: Helga frá Tónlistarháskólanum í Utrecth í Hollandi og Ástríður frá Tónlistarháskólanum í Bloomington, Indiana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar