Hótel

Kristján Kristjánsson

Hótel

Kaupa Í körfu

Finnski sendiherrann á Íslandi, Timo Koponen, gróðursetti í gær, ásamt fleirum, tré á Dalvík þar sem framkvæmdir við nýtt hótel munu hefjast síðar í sumar. Gróðursetningin markar í raun upphaf framkvæmdanna og kemur í stað hinnar hefðbundnu skóflustungu. Má kannski segja að það sé táknrænt þar sem nýja hótelið mun vera eitt fyrsta hótelið í heiminum sem er byggt frá grunni með forsendur og staðla norræna umhverfismerkisins, Svansins, í huga. Myndatexti: Sendiherra Finna á Íslandi, Timo Koponen, og ræðismaður Finna á Norðurlandi, Þórarinn B. Jónsson, gróðursetja tré í sameiningu við athöfnina á Dalvík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar