Réttir Mývetninga

BFH

Réttir Mývetninga

Kaupa Í körfu

Mývetningar réttuðu á tveimur stöðum í gær, fyrstir allra á landinu á þessu hausti Mývatnssveit | Farið var í göngur í Mývatnssveit á fimmtudaginn í leiðindanorðan slagviðri og þoku. Þannig viðraði ekki skemmtilega á gangnamenn að þessu sinni en leitir gengu þó vel. Hópadagurinn var svo á laugardaginn en þá koma fjallmenn með hópana til byggða. Réttað var síðan á sunnudagsmorgun í báðum réttum sveitarinnar. Voru þetta fyrstu réttir þessa hausts á landinu öllu. MYNDATEXTI: Andinn var góður meðal réttarmanna í Baldursheimsrétt í gærdag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar