Sýning Ragnars Axelssonar á Austurvelli.

Sýning Ragnars Axelssonar á Austurvelli.

Kaupa Í körfu

Það gengur hægt, en smám saman verður miðborgin fegurri. Sú gleðilega nýjung var tekin upp í fyrrasumar og aftur á þessu sumri að setja þar upp glæsilegar ljósmyndasýningar. Hefur það mælst vel fyrir almennt og má oft sjá á góðviðrisdögum að sýningarnar draga að fólk og auka á þá miðborgarstemningu, sem sífellt er verið að leita að. MYNDATEXTI: Sýning Ragnars Axelssonar á Austurvelli. Allt í einu hefur staðurinn breyzt og gamla pósthúsið hefur fengið upp að hlið sinni að því er virðist annað gamalt hús, svartbikað. En það heyrir til sýningunni og á heima í Færeyjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar