Hlíðarfjall

Kristján Kristjánsson

Hlíðarfjall

Kaupa Í körfu

Vetrarlegt um að litast í Hlíðarfjalli HELDUR vetrarlegt var um að litast í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í gærmorgun en þar hafði snjóað vel niður fyrir Skíðahótel. Í Hlíðarfjalli standa nú yfir framkvæmdir í tengslum við væntanlega snjóframleiðslu. "Sumarið er ekki búið og það er strax farið að snjóa," sagði Ásgrímur Harðarson, starfsmaður Tréverks á Dalvík, sem var að vinna í grunni væntanlegrar dælustöðvar rétt við skíðalyftuna Fjarkann. MYNDATEXTI: Snjókarl Þeir Hilmar Brynjólfsson og Björn Einarsson, starfsmenn Skíðastaða, voru ekki lengi að búa til snjókarl við Skíðahótelið í gærmorgun, enda nægur snjór.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar