Blóðgjafar

Margrét Þóra Þórsdóttir

Blóðgjafar

Kaupa Í körfu

ARNÓR Þorgeirsson gaf blóð í Blóðbanka Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gærmorgun. Það var ekki í fyrsta sinn sem Arnór mætti galvaskur á svæðið, heldur náði hann því marki fyrstur blóðgjafa þar að gefa blóð í 75. sinn. "Addi hefur nokkuð örugga foyrstu," sagði Vilborg Gautadóttir, deildarstjóri Blóðbankans, en hún nefndi að þónokkuð margir, eða 23 einstaklingar, hefðu gefið blóð 50 sinnum eða oftar. Þeirra á meðal er Gunnar Frímannsson sem mætti skömmu á eftir Arnóri og gaf blóð í 50. sinn MYNDATEXTI :Gæðablóð Gunnar Frímannsson mætti galvaskur í blóðbankann og gaf blóð í 50. sinn. Vilborg Gautadóttir deildarstjóri er með honum á myndinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar