Blóðgjafar

Margrét Þóra Þórsdóttir

Blóðgjafar

Kaupa Í körfu

ARNÓR Þorgeirsson gaf blóð í Blóðbanka Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gærmorgun. Það var ekki í fyrsta sinn sem Arnór mætti galvaskur á svæðið, heldur náði hann því marki fyrstur blóðgjafa þar að gefa blóð í 75. sinn. "Addi hefur nokkuð örugga foyrstu," sagði Vilborg Gautadóttir, deildarstjóri Blóðbankans, en hún nefndi að þónokkuð margir, eða 23 einstaklingar, hefðu gefið blóð 50 sinnum eða oftar. Þeirra á meðal er Gunnar Frímannsson sem mætti skömmu á eftir Arnóri og gaf blóð í 50. sinn MYNDATEXTI:Hæg heimatökin Enginn hefur gefið oftar blóð en Arnór Þorgeirsson frá því nákvæmar skráningar hófust í blóðbanka FSA. Hann mætti í 75. sinn í gærmorgun og segir heimatökin hæg, hann starfar á sjúkrahúsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar