Samlestur í Iðnó

Samlestur í Iðnó

Kaupa Í körfu

Leikhús | Á dögunum var fyrsti samlestur á nýju íslensku verki, söngfarsanum "Gestur - Síðasta máltíðin" eftir Gaut G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson. Segir verkið frá þeim Lauga og Ólíver, samkynhneigðum hjónum í Grafarholtinu og nýjum nágranna þeirra: atvinnuflugmanninum heillandi, Gesti sem setur líf þeirra hjónakorna úr skorðum. Þeir Gautur og Gunnar fara sjálfir með hlutverk parsins en Gestur er leikinn af Hrólfi Sæmundssyni. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson og píanóleikari Raúl Jiménez.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar