Skipulagssýning

Þorkell Þorkelsson

Skipulagssýning

Kaupa Í körfu

Hafþór Yngvason, nýráðinn safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, opnar þrjár sýningar í Hafnarhúsinu í kvöld. Af því tilefni mun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri ávarpa opnunargesti. Sýningarnar þrjár eru hver annarri ólík; Guðrún Vera Hjartardóttir sýnir ný verk; æskuverk Errós eru á annarri sýningu og sú þriðja ber yfirskriftina Hvernig borg má bjóða þér? Sú sýning er afrakstur samstarfs Listasafns Reykjavíkur og Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar og er ætlað að varpa ljósi á fortíð og framtíð skipulagsmála í borginni með áherslu á Vatnsmýrina. MYNDATEXTI: Á skipulagssýningu borgarinnar verður gólflögð fimmtíu fermetra loftmynd af Reykjavík, en auk þess verða sýnd módel, ljósmyndir, skipulagsdrög og teikningar af borginni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar