Louise Campell

Jim Smart

Louise Campell

Kaupa Í körfu

"Ég var á sýningu í Mílanó í apríl og hitti þá Eyjólf í Epal. Hann spurði hvort ég vildi ekki koma hingað," segir Louise Campell skælbrosandi í sólinni á tröppunum fyrir utan verslunina. Hún segist hafa þegið boðið samstundis, enda alltaf langað að fara til Íslands. Louise lærði hönnun í London og Danmörku og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir hönnun sína. Í fyrra fékk hún til dæmis Finn Juhl arkitektaverðlaunin fyrir störf sín og tímaritið Bo bedre kaus hana hönnuð ársins í ár. MYNDATEXTI: Louise Campell í sófa sem hún hannaði og ekki hefur verið sýndur áður. Ljósin eru einnig eftir hana og eru framleidd af Louis Poulsen.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar