Bjarney Margrét Jónsdóttir

Bjarney Margrét Jónsdóttir

Kaupa Í körfu

Smávini fagra kallaði Jónas Hallgrímsson litlu blómin úti í náttúrunni og víst er að litlu hlutirnir skipta miklu máli í lífinu. Bjarney Margrét Jónsdóttir er einmitt ein af þeim sem gera sér fulla grein fyrir því. Hún hefur verið veik fyrir litlum hlutum, alveg frá því hún man eftir sér. Þessir hlutir eru ekki endilega efnislega dýrir, sumir eru jafnvel úr pappa og kannski bölvað drasl í augum þeirra sem ekki þekkja hvað býr að baki þeim. MYNDATEXTI: Veski sem Barði vinur Bjarneyjar færði henni frá útlandinu. "Við Barði erum göngufélagar í gönguhópnum Ásbjörn elskan. Þegar hann sá þetta veski, sem er reyndar kveikjari, datt honum í hug dama og tengdi það við mig. Svo hann keypti það og færði mér."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar