Stórtækir innbrotsþjófar

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Stórtækir innbrotsþjófar

Kaupa Í körfu

Brotist var inn í tölvuverslunina Start í Bæjarlind í Kópavogi um fimmleytið í gærmorgun. Ekki er vitað hversu margir voru að verki. Innbrotið þykir óvenjulegt í meira lagi en við verknaðinn var notuð stóreflis vinnuvél með ámoksturstækjum, sem stolið var fyrr um nóttina í Jörfalind. Var gröfunni ekið að versluninni og armur hennar notaður til að brjóta þjófunum leið inn í verslunina. Að sögn lögreglunnar var tölvubúnaði stolið og þjófarnir flúnir þegar lögregluna bar að. Málið er í rannsókn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar