Veggjakrot á Mýrargötunni

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Veggjakrot á Mýrargötunni

Kaupa Í körfu

Menn greinir á um hvort ungi maðurinn hér fyrir ofan er listamaður eða skemmdarvargur enda er graffiti umdeilt en einnig ævafornt tjáningarform. Þessi "lista-vargur" kemur þó líklega ekki nærri því graffiti-stórvirki sem unnið verður í dag þegar nýtt verk verður málað á allan bakvegg verslunar Máls og menningar við Laugaveg. Hingað til lands hafa komið 18 graffiti-listamenn í fremstu röð og hefjast þeir handa við verkið kl. 14 ef veður leyfir. Til að skapa réttu stemninguna mun DJ De La Rosa spila á Vegamótastíg frá 14 til 18 og síðar um kvöldið, kl. 19, verður verkinu fagnað á Prikinu við tónlist Benna B Ruff.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar