Alþingishúsið

Alþingishúsið

Kaupa Í körfu

HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, kynnti í gær umfangsmiklar endurbætur sem staðið hafa yfir á Alþingishúsinu sl. tvö ár. Árið 2002 var ákveðið að ráðast í endurbætur á Alþingishúsinu öllu, en engar heildstæðar viðgerðir höfðu þá farið fram á húsinu frá því það var byggt árið 1881. Meðal annars hefur verið skipt algerlega um gólfefni og aðgengi fatlaðra bætt til muna. Þá hefur veggjum verið breytt til að bæta hljómburð hússins. Alþingishúsið og Skálinn verða til sýnis almenningi í dag frá kl. 10-15 en inngangur er um aðaldyr Skálans. MYNDATEXTI: Annar langskipsstóllinn sem Alþingi fékk að gjöf frá skoskum handverksmanni sómir sér vel við leiðina út.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar