Sól og skuggar

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sól og skuggar

Kaupa Í körfu

Í LOFTKÖSTUM hendast þær áfram eftir Tjarnarbakkanum, í kappi við tímann í þeim tilgangi að styrkja líkama og sál. Halda mætti að hér væru furðuverur á sveimi, því svo virðist sem fætur þeirra snerti vart gangstéttina. Sú er þó ekki raunin því þarna eru á ferðinni stúlkur úr Menntaskólanum í Reykjavík á harðahlaupum í kulda og roki undir daufri haustsólinni. Ljósmyndari Morgunblaðsins var ekki eini áhorfandinn því ef vel er að gáð má sjá að önd rétt við bakka Tjarnarinnar fylgist grannt með, hugsanlega tilbúin að láta annað fiðurfé vita breyti hlaupagarparnir óvænt um stefnu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar