Framkvæmdir

Kristján Kristjánsson

Framkvæmdir

Kaupa Í körfu

Akureyri | "Skaparinn er ekki með okkur þessa dagana - alla vega ekki við svona vinnu," sagði Gunnar Björgvinsson, starfsmaður Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar, þar sem hann var að vinna við endurbætur á lóð leikskólans Flúða, ásamt félaga sínum Herði Gunnarssyni. "Við höfum fengið alls kyns veður við þessar framkvæmdir og þá aðallega úrkomu." Á meðan á þessum framkvæmdum hefur staðið hefur verið þrengt aðeins að börnunum en þau láta það ekki á sig fá. Meðal annars á setja gúmmíhellur við leiktækin á lóðinni, sem er mikið öryggisatriði fyrir börnin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar