Valur - Potsdam 1:8

Árni Torfason

Valur - Potsdam 1:8

Kaupa Í körfu

Valur tapaði óþarflega stórt fyrir þýska liðinu Potsdam í fyrri viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvennaflokki á Laugardalsvelli í gær. Lokatölur 8:1 þar sem leikmenn þýska liðsins nýttu vel flest sín marktækifæri í síðari hálfleik til þess að skora sex mörk en að loknum fjörugum og jöfnum fyrri hálfleik var lið Potsdam 2:1 yfir sem vart var í samræmi við gang leiksins. Það má því telja næsta víst að Valsliðið sé úr leik í keppninni þótt síðari leikurinn sé eftir í Þýskalandi um næstu helgi. MYNDATEXTI: Margrét Lára Viðarsdóttir og Juken Becher berjast um boltann í eitt skipti af mörgum í leik Vals og Potsdam á Laugardalsvelli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar