Blindramerkingar í Háskóla Íslands

Brynjar Gauti

Blindramerkingar í Háskóla Íslands

Kaupa Í körfu

Hafin er vinna við að merkja byggingar Háskóla Íslands með blindraletursmerkingum. Fyrstu merkingarnar voru settar upp í aðalbyggingu Háskólans í gær og voru tvær blindar stúlkur úr 9. og 10. bekk, þær Dagný Kristjánsdóttir og Ester Heiðarsdóttir, fengnar til að merkja stofur, skrifstofur og salerni í byggingunni. Aðspurð sagði Dagný þetta mjög gott framtak en að of snemmt væri að segja til um hvort þetta muni nýtast henni því hún hafi ekki enn ákveðið hvort hún ætli að stunda nám við Háskólann í framtíðinni. MYNDATEXTI: Ester Kristjánsdóttir frá Sjónstöðinni límir blindraletursmerkingu upp í Háskóla Íslands en það ku vera nýlunda í íslenskum háskólum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar