Síld

Síld

Kaupa Í körfu

Veiðar á íslenzku sumargotssíldinni eru nú hafnar af fullum krafti og ganga þær vel. Samkvæmt upplýsingum Samtaka fiskvinnslustöðva hefur verið tilkynnt um löndun á um 4.200 tonnum af síld til vinnslu í landi, en auk þess eru vinnsluskipin byrjuð að frysta um borð. MYNDATEXTI: Veiðar Þrjú skip Samherja voru á Fáskrúðsfirði nú í vikunni, Háberg sem kom með rifna nót og 500 tonn af síld, sem dælt var í Baldvin Þorsteinsson og Vilhelm Þorsteinsson til vinnslu. Þá landaði Hoffell 160 tonnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar