Jóhannes Kjarval - Ný bók

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jóhannes Kjarval - Ný bók

Kaupa Í körfu

Ný bók um Kjarval dregur upp nýja og ítarlega mynd af listamanninum "ÞETTA eru rúm fimm kíló af glæsilegum listferli," segir Einar Matthíasson bókaútgefandi stoltur, um leið og hann rífur varlega plastið utan af glænýrri og afar veglegri bók um Jóhannes Kjarval listmálara, til að sýna blaðamanni. Einar, og eiginkona hans, Erna Sörensen, eru eigendur Nesútgáfunnar, sem stendur að þessu viðamikla verki. "Bókin um Kjarval er 640 síður og í henni eru 516 myndverk Kjarvals, 150 ljósmyndir og höfundar eru margir og góðir," segir Einar. MYNDATEXTI: Erna Sörensen og Einar Matthíasson skoða Kjarval.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar