Holger Søe Jensen

Brynjar Gauti

Holger Søe Jensen

Kaupa Í körfu

ÁKVEÐIÐ hefur verið að breyta nafni Hörpu Sjafnar í Flügger liti, en danski málningarframleiðandinn Flügger keypti allt hlutafé í Hörpu Sjöfn í desember í fyrra. Nafnbreytingin hefur ekki áhrif á þekktustu vörur Hörpu Sjafnar sem verða áfram seldar undir sínum gömlu nöfnum. Að sögn Holger Søe Jensen framkvæmdastjóra Flügger ehf. þá hafa breytingar tengdar breyttu eignarhaldi gengið mjög vel. Í stað uppsagna á starfsfólki hefur fólki verið fjölgað. Starfsmenn og viðskiptavinir hafa verið mjög jákvæðir í garð nýrra eigenda og áforma þeirra um framtíð fyrirtækisins. MYNDATEXTI: Holger Søe Jensen

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar