Forsetinn í opinberri heimsókn í Hafnarfirði

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Forsetinn í opinberri heimsókn í Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff voru í gær í heimsókn í Hafnarfirði og tóku Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, Guðmundur Sophusson sýslumaður og aðrir forsvarsmenn Hafnarfjarðarbæjar á móti forsetahjónunum við bæjarmörkin í gærmorgun. Fyrst komu forsetahjónin við á Hrafnistu og heilsuðu meðal annars upp á Margréti Sigurðardóttur, 103 ára. Þá skoðuðu þau ýmsar stofnanir í bænum, t.d. leikskóla og Flensborgarskólann. Heimsókninni lauk svo í gærkvöldi með fjölskylduhátíð í Íþróttahúsinu við Strandgötu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar