Símavarsla á Kvennafrídegi hjá Eimskip

Símavarsla á Kvennafrídegi hjá Eimskip

Kaupa Í körfu

Karlarnir sýndu skilning Svipað ástand var uppi á teningnum í aðalstöðvum Eimskips við Sundaklett, þar sátu þrír karlmenn við skiptiborðið sem venjulega er sinnt af þremur konum á daginn. "Við komum hingað rétt fyrir tvö, lærðum á borðið og tókum svo við símsvörun og það hefur bara gengið nokkuð vel," sagði Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, en með honum á vaktinni vou Bragi Þór Marinósson og Ragnar Þór Jónsson. MYNDATEXTI: Á skiptiborðinu hjá Eimskip. F.v.: Ragnar Þór Jónsson, Bragi Þór Marinósson, Stefán Magnússon og Hafþór Hilmarsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar