Djúpivogur - Leikskóli

Andrés Skúlason

Djúpivogur - Leikskóli

Kaupa Í körfu

Nýr og glæsilegur leikskóli var vígður með viðhöfn á Djúpavogi síðastliðinn föstudag. Af því tilefni var efnt til samkomu í hinum nýja skóla með skemmtilegheitum af ýmsu tagi. M.a. sungu leikskólabörnin af mikilli innlifun fyrir gesti við góðar undirtektir. Leikskólinn, sem er hannaður af arkitektastofunni Arkís, er glæsilegur á að líta í alla staði og er aðstaða þar öll hin fullkomnasta. Þá er leiksvæðið í kringum skólann einnig mjög vel úr garði gert. MYNDATEXTI: Myndarleg aðstaða Nýi leikskólinn á Djúpavogi var vígður um helgina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar