Íslenskir hönnuðir

Golli /Kjartan Þorbjörnsson

Íslenskir hönnuðir

Kaupa Í körfu

Þennan októbermorgun er stefnan tekin í miðbæ Reykjavíkur. Það er kalt úti en sólin skín. Ætlunin er að kíkja í búðir og skoða hvernig íslenskir fatahönnuðir sjá vetrartískuna 2005-2006 fyrir sér. Strax í Bankastrætinu dett ég inn í verslunina Aurum, Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir skartgripahönnuður hefur rekið hana frá árinu 1999. Augun standa á stilkum og hendurnar fálma eftir silfurnælu og silfureyrnalokkum sem minna á blómið ljónslappa. Í því rekur inn kollinn bankastarfsmaður og splæsir á sig módelhring úr gulli þar sem líka grillir í einn demant. Fyrir innan afgreiðsluborðið stendur Berglind Laxdal fatahönnuður. Svo skemmtilega vill til að hún hannar einnig samkvæmiskjóla sem hafa víða vakið eftirtekt. Berglind hannar upp úr eldri kjólum sem henni áskotnast héðan og þaðan. Hún dregur fram einn svartan og hvítan sem fannst til dæmis í fataskápnum hjá tengdó og fær vonandi fljótt nýtt hlutverk hjá einhverri annarri. Enn ótrúlegra er að Berglind er líffræðingur sem söðlaði um, fylgdi hjartanu og lærði fatahönnun í LHÍ. Síðan hún útskrifaðist hefur hún haft nóg að gera við að hanna og sauma sérstaka kjóla. myndatexti: Ásta Guðmundsdóttir hannaði þennan módelkjól sem hefur vakið mikla athygli, 75.000 kr. Fæst í verslun Ástu. Hatturinn er eftir Gullu í Má Mí Mó, 5.400 kr. Svarthvítir tónar | Enn ofar í götunni, heldur tískuverslunin ELM áfram að slá tóninn í svörtu og hvítu. ELM er í eigu þriggja kvenna sem stofnuðu fyrirtækið árið 1999 og reka þær samhliða því framleiðslufyrirtæki í Perú

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar