Blautbolakeppni

Ragnar Axelsson

Blautbolakeppni

Kaupa Í körfu

GELDNEYTIN innan við Tíðaskarð á Kjalarnesi létu ekki á sig fá þótt hvasst og hráslagalegt væri í áhlaupinu á föstudag. Þau tóku væna spretti um úthagann meðan slydduhríðin buldi á þeim og brynjaði aðeins feldinn. Á stundum virtist þetta vera keppni um það hver væri sprettharðastur og mikill galsi í gripunum. Líklega hafa nautgripirnir þó bara verið að hlaupa úr sér hrollinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar