Átak Krabbameinsfélagsins

Átak Krabbameinsfélagsins

Kaupa Í körfu

ÁRVERKNISÁTAKI um brjóstakrabbamein, sem staðið hefur í október, er nú að ljúka. Konur úr Samhjálp kvenna, stuðningshópi kvenna sem greinst hafa með brjóstakrabbamein, dreifðu bæklingum og bleikum slaufum um helgina í Kringlunni og tóku við frjálsum framlögum til styrktar baráttunni gegn þessum sjúkdómi. Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsfélaginu hefur árveknisátakið tekist mjög vel að þessu sinni og er greinilegt að íslenskar konur vilja bera heilsu sína fyrir brjósti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar