Ragnar Axelsson

Ragnar Axelsson

Kaupa Í körfu

Myndstef, samtök myndhöfunda, efna í ár í fyrsta sinn til verðlaunaveitinga fyrir framúrskarandi verk myndlistarmanna og myndhöfunda. Dómnefnd Myndstefs var á einu máli um að heiðursverðlaun samtakanna árið 2005 skyldu veitt Gabríelu Friðriksdóttur fyrir myndbandsverkið: Versations/Tetralógía. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Gabríelu viðurkenninguna við athöfn í Listasafni Íslands í gær. ... Styrktaraðili Myndstefs við þessa verðlaunaveitingu, Landsbankinn, ákvað að leggja fram kr. 250 þúsund krónur aukreitis til að styrkja einstakt framúrskarandi verk myndhöfundar, en þá viðurkenningu hlaut bókin Andlit norðursins eftir Ragnar Axelsson. Í umsögn dómnefndar Myndstefs sagði meðal annars: "Ragnar Axelsson hefur starfað sem blaðaljósmyndari í nærri þrjátíu ár. Í starfi sínu hefur hann tamið sér sérstakan stíl og vinnubrögð sem æ færri hafa á takteinum. Hann leggur rækt við að fanga "úrslita-augnablikið" og vinnur síðan úr því af sérstakri elsku á hinni svart hvítu silfurmynd. Á tímum þegar færri og færri kunna til verka í myrkraherberginu, sýnir hann okkur meistaratakta og sannar um leið að fagleg vinnubrögð styrkja form og innihald MYNDATEXTI "Stoltur og þakklátur." Ragnar Axelsson ljósmyndari þakkar fyrir sig.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar