Haukar - Keflavík 66:48

Sverrir Vilhelmsson

Haukar - Keflavík 66:48

Kaupa Í körfu

Þrátt fyrir að standa í ströngu í Evrópukeppni munaði Haukastúlkur lítið um að leggja Íslandsmeistara Keflavíkur að velli að Ásvöllum í gærkvöldi, réðu ferðinni og unnu með fjórtán stiga mun, 66:48. Hittni Keflvíkinga afar slök - fjórðungur skota innan teigs og 1 af 21 þriggja stiga - en það skipti ekki sköpum, heldur munur á baráttu og einbeitingu. Fyrir vikið er komin meira spenna í deildina en verið hefur í nokkur ár, þar sem þrjú lið berjast um toppsætið. MYNDATEXTI: Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukum, og Reshea Bristol, Keflavík, í baráttu á Ásvöllum í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar