Drengir gera góðverk

Steinunn Ásmundsdóttir

Drengir gera góðverk

Kaupa Í körfu

ÞRÍR drengir bönkuðu upp á í húsi einu á Egilsstöðum á dögunum og buðu góðverk. Húsráðandi varð nokkuð hvumsa yfir tilboðinu en drengirnir sátu fast við sinn keip og sögðust vilja gera góðverk og það gæti verið hvað sem væri. Varð úr að þeim voru fengnar skóflur í hendur og mokuðu þeir galvaskir frá bæjardyrum snjó og krapa og linntu ekki látum fyrr en allt var hreint. MYNDATEXTI: Þeir Hörður Bragi, Sigtryggur Örn og Jón Otti gengu í hús á Egilsstöðum og buðu fólki að gera fyrir það góðverk, en þeir eru þátttakendur í TTT-hópi unglingastarfs Egilsstaðakirkju.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar