Antonía Hevesi, píanóleikari og organisti

Þorkell Þorkelsson

Antonía Hevesi, píanóleikari og organisti

Kaupa Í körfu

Haldnir verða tónleikar í hádegistónleikaröð Hafnarborgar á morgun kl. 12. Tónleikarnir eru í boði Hafnarborgar - enginn aðgangseyrir - og öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Antonía Hevesi, píanóleikari og organisti við Hafnarfjarðarkirkju, er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar og velur hún þá listamenn sem fram koma á tónleikunum. Í þetta sinn er það Tatu Kantomaa harmoníkuleikari sem verður gestur hádegistónleikanna. Efnisskráin verður létt og skemmtileg, en hún samanstendur m.a. af ungverskri, rússneskri og rúmenskri tónlist.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar