Skóflustunga að öryggisíbúðum fyrir aldraða

Skóflustunga að öryggisíbúðum fyrir aldraða

Kaupa Í körfu

Mosfellsbær | Herdís Sigurjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, tók á þriðjudag fyrstu skóflustunguna að þrjátíu og níu öryggisíbúðum fyrir aldraða sem rísa munu við Hlaðhamra 2 í Mosfellsbæ. Áætlað er að íbúðirnar verði fullbyggðar hinn 1. desember árið 2006. Í Hlaðhömrum stendur fyrir bygging með 20 vernduðum þjónustuíbúðum fyrir aldraða, en þeim verður breytt í öryggisíbúðir og munu þær tengjast hinum nýju húseiningum með tengigangi. MYNDATEXTI: Jarðvegurinn ruddur Herdís Sigurjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, tekur fyrstu skóflustunguna í góðu veðri við Hlaðhamra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar