Börn og snjór

Kristján Kristjánsson

Börn og snjór

Kaupa Í körfu

Akureyri | Heldur hlýnaði norðan heiða í gær en tíð hefur nú í haust verið heldur hráslagaleg og vetur sest snemma að. Mikill snjómokstur á götum bæjarins verður til þess að víða myndast heilmiklir snjóhaugar, en slíkir himinháir skaflar þykja börnum nokkuð skemmtilegir til leikja. Ungir voru að leik við skafl skammt frá Síðuskóla, höfðu með í för sleða og brunuðu á þeim niður við mikinn fögnuð. Einn kaus þó annan fararskjóta, nefnilega reiðhjól, og á því hentist hann niður hauginn - með hjálm á höfðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar