Veiðimyndir - Þórður Sigurðsson á Rangárflúðum í Ytri Rangá.

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir - Þórður Sigurðsson á Rangárflúðum í Ytri Rangá.

Kaupa Í körfu

Það fór aldrei svo að laxveiðinni væri algerlega lokið þetta árið, því ákveðið var að framlengja veiðitímann í Ytri-Rangá til 20. október. Hafa menn þar fyrir sér að gríðarlega mikið er af laxi í ánni og engin sérstök ástæða til að vernda hrygningarstofn. Það gæti því farið svo að vegna framlengingar skrölti Ytri- Rangá fram úr Eystri-Rangá í efsta sætinu yfir laxveiðiár með hvað hæsta aflatölu. MYNDATEXTI: Lax þreyttur á Rangárflúðum í Ytri-Rangá, en þar er enn dreginn lax þótt öðrum ám hafi verið lokað. Veiðimenn hafa verið að fá mjög góðan afla. Þórður Sigurðsson glímir við lax sem hann setti í á Rangárflúðum í Ytri Rangá.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar